Innlent

Stofna nýjan umhverfissjóð

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Myndin sýnir Hesteyrarfjörð í Jökulfjörðum á norðanverðum Vestfjörðum, og mögulega framtíðarsýn ef þar kæmu sjókvíar sem eru bæði sjón- og umhverfismengandi að mati IWF.
Myndin sýnir Hesteyrarfjörð í Jökulfjörðum á norðanverðum Vestfjörðum, og mögulega framtíðarsýn ef þar kæmu sjókvíar sem eru bæði sjón- og umhverfismengandi að mati IWF. sigurjón ragnar
Þau Ingólfur Ásgeirsson, flugstjóri, og Lilja R. Einarsdóttir, framkvæmdastjóri, hafa stofnað umhverfissjóðinn The Icelandic Wildlife Fund (IWF) en megináhersla sjóðsins er náttúruvernd og umhverfismál, þar með talið að standa vörð um villta íslenska laxastofninn, sjóbirting, sjóbleikju og aðra ferskvatnsfiska í ám og vötnum Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum en þar segir að þau Ingólfur og Lilja leiði „breiðan hóp fólks með fjölbreyttan bakgrunn sem á það sameiginlegt að vilja slá skjaldborg um íslenska náttúru.

Náttúra og umhverfisgæði Íslands standa frammi fyrir mikilli ógn af hálfu fyrirtækja sem hyggjast hefja stórfellt fiskeldi eða stórauka við núverandi sjókvíaeldi við strendur landsins. Þar á meðal eru norsk stórfyrirtæki sem hafa valdið miklum umhverfisspjöllum víða um heim. Þessi fyrirtæki eyða háum fjárhæðum í ágenga hagsmunagæslu og þrýsting á stjórnvöld í héraði og á landsvísu. Það verður að spyrna þar við fótum og halda uppi vörnum fyrir umhverfi og lífríki landsins,“ segir í tilkynningu.

IWF eru grasrótarsamtök og ekki rekin í gróðaskyni. Þá stundar hann ekki atvinnurekstur heldur aflar fjár til verkefna með frjálsum framlögum frá fyrirtækjum, einstaklingum og stofnunum.

Í stjórn sjóðsins, sem starfar í tvö ár í senn, sitja þau Freyr Frostason arkitekt, sem er formaður, Örn Valdimar Kjartansson framkvæmdastjóri, Ragna Sif Þórsdóttir hönnuður. Varamenn eru Arndís Kristjánsdóttir lögfræðingur og  Vilhelm Anton Jónsson tónlistarmaður. Framkvæmdastjóri er Lilja R. Einarsdóttir og endurskoðandi er PwC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×