Lífið

Stofna félag fyrir konur sem elska bjór

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Þær Unnur og Elín hafa mikinn áhuga á bjór.
Þær Unnur og Elín hafa mikinn áhuga á bjór. Fréttablaðið/Valli
„Þetta byrjaði út frá því að það fauk í okkur einhvern tímann þegar við vorum að tala um að okkur þætti viss bjór góður. Þá heyrðist í einhverjum strák að við vissum ekkert um það, þetta væri ekki stelpubjór,“ segir Unnur Tryggvadóttir Flóvenz sem ásamt Elínu Oddnýju Sigurðardóttur stendur fyrir stofnun Félags íslenskra bjóráhugakvenna.

Þær Unnur og Elín eru báðar miklar bjóráhugakonur og ákváðu að stofna félagið til þess að geta deilt áhuga sínum með sem flestum kynsystrum sínum. Skilyrðin fyrir inngöngu í félagið er að vera kona og að hafa áhuga á bjór.

„Það er svo oft tengt við bjór að þetta sé bara áhugamál stráka. Við höfum báðar mikinn áhuga á bjór og finnst skemmtilegt að pæla í mismunandi tegundum. Við ákváðum að þetta gæti verið skemmtilegt félagsstarf fyrir konur sem hafa áhuga á bjór,“ segir Unnur, sannfærð um að geta breytt því að bjóráhugi sé einungis tengdur við áhugasvið karla.

Sjálf segir hún sinn bjóráhuga hafa kviknað þegar hún var í heimsókn hjá systur sinni í Þýskalandi fyrir nokkrum árum. „Við vinur minn fórum á bar þegar systir mín var á kóræfingu. Þar fékk ég besta hveitibjór í heimi sem var bruggaður á staðnum og eftir það varð ekki aftur snúið,“ segir hún.

Undirtektir við stofnun félagsins hafa verið vonum framan og hafa nú þegar um 60 konur boðað komu sína á stofnfundinn. Unnur segir þær ekki hafa mótað stefnu félagsins að öðru leyti en því að félagskonur þurfi að hafa áhuga á að bjór. „Planið er að hittast allavega einu sinni til tvisvar á önn. Við ætlum að byrja bara á að hittast á þessum stofnfundi, spjalla og ræða hvað við getum gert. Hið eina sem skiptir máli er að konurnar hafi áhuga á bjór.“

Stofnfundurinn verður haldinn á Microbar 2. október næstkomandi klukkan 17 en nánari upplýsingar er hægt að finna á Facebook-síðu viðburðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×