Lífið

Stjörnurnar styðja Forynjurnar - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigga Kling, Þorgrímur og Erpur eru stuðningsmenn Forynjanna.
Sigga Kling, Þorgrímur og Erpur eru stuðningsmenn Forynjanna.
Mýrarboltaliðið Forynjur hefur aflað sér aðdáenda um allt land ef marka má myndband sem birt hefur verið á netinu.

Þar lýsa m.a. nokkrir þjóðþekktir einstaklingar yfir stuðningi sínum við liðið. Má þar nefna sem dæmi Sigríði Klingenberg spákonu með meiru, fótboltagoðið og rithöfundinn Þorgrím Þráinsson, Guðmund Steingrímsson þingmann og eiginkonu hans Alexíu Björg Jóhannsdóttur leikkonu, rapparann Blaz Roca og fyrrum Evrópumeistarann og FC Karaoke-manninn Pétur Magnússon.

„Við eigum einfaldlega langbestu aðdáendurna,“ segir Kristín Sigurðardóttir, fyrirliði Forynja.

„Ár eftir ár höfum við notið sívaxandi stuðnings og við ákváðum nú að sýna opinberlega hversu flott baklendi við höfum.“ Liðið stendur nú í ströngu við undirbúning þátttöku sinnar á Evrópumeistaramóti mýrarboltans sem fer fram á Ísafirði um verslunarmannahelgina.

Forynjur hafa undanfarin ár vakið athygli fyrir litríka þátttöku um árabil. Liðið, sem myndað er að mestu af heimamönnum, er eitt af rótgrónari keppnisliðum Mýrarboltans og var sett á stofn 2007. Í myndbandinu má sjá einnig bregða fyrir svipmyndum af Forynjum í gegnum árin en það var Bjarki Friðbergsson sem sá um klippingu þess.

„Bjarki er hirðljósmyndarinn okkar og hann sá um að uppsetningu  myndbandsins og við Forynjur erum alveg í skýjunum yfir því hvernig til tókst. Við vonum að fólk hafi gaman að og skelli sér vestur í drulluna þar sem fjörið er,“ segir Kristín sem segist fullviss um að mótið verði spennandi og skemmtilegt í ár. „Þetta verður ár Forynja, það er ég alveg viss um.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×