Lífið

Stjörnurnar berjast gegn heimilisofbeldi en koma vart upp orði

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Samtökin Joyful Heart Foundation standa á bak við herferðina No More en tilgangur hennar er að berjast gegn heimilisofbeldi og kynferðisbrotum. 

Samtökin hafa sent frá sér ýmsar auglýsingar þar sem þekktir leikarar tjá sig um málaflokkinn.

Nú hafa samtökin hins vegar sent frá sér nokkur, þrjátíu sekúndna myndbönd þar sem þessir sömu leikarar koma vart upp orði og tárast þegar baráttuefnið ber á góma.

Meðal þeirra sem berjast í herferðinni eru Mariska Hargitay, Hilary Swank og Jemima Kirke.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×