Íslenski boltinn

Stjörnumenn bundu enda á 18 leikja taplausa hrinu Víkinga í Ólafsvík

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði seinna mark Ólsara gegn Stjörnunni.
Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði seinna mark Ólsara gegn Stjörnunni. vísir/hanna
Átján leikja taplausri hrinu Víkings Ó. á heimavelli lauk í gærkvöldi þegar Stjarnan kom í heimsókn í 11. umferð Pepsi-deildar karla.

Stjörnumenn fóru með sigur af hólmi, 2-3, og urðu þar með fyrsta liðið til að vinna deildarleik í Ólafsvík í tvö ár.

Sjá einnig: Ejub: Skrítið að sami dómari dæmi alltaf hjá okkur

Grindvíkingar sóttu sigur til Ólafsvíkur í 15. umferð 1. deildar 9. ágúst 2014 en eftir þann leik byggðu Ólsarar upp sannkallað heimavallarvígi.

Þeir unnu tvo af þremur heimaleikjum sínum það sem eftir var af 1. deildinni 2014. Víkingar voru svo algjörlega óstöðvandi á heimavelli í 1. deildinni í fyrra og unnu þá 10 af 11 leikjum sínum með markatölunni 28-6.

Ólsarar eru í fínum málum í 5. sæti Pepsi-deildarinnar.vísir/vilhelm
Ólsarar unnu 1. deildina 2015 með yfirburðum og settu stigamet. Þeir héldu svo uppteknum hætti á heimavelli í Pepsi-deildinni og unnu fyrstu fjóra heimaleiki sína í sumar.

En með sigrinum í gær komu Stjörnumenn í veg fyrir að Víkingar næðu nítjánda leiknum án þess að tapa á heimavelli.

Baldur Sigurðsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson og Arnar Már Björgvinsson skoruðu mörk Stjörnunnar í leiknum í gær en Hrvoje Tokic og Þorsteinn Már Ragnarsson voru á skotskónum hjá Ólsurum. Tokic skildi félaga sína reyndar eftir í súpunni þegar hann fékk að líta rauða spjaldið á 42. mínútu fyrir að sparka í Baldur.

Víkingar unnu 16 af 18 leikjum í þessari ótrúlegu taplausu hrinu og gerðu tvö jafntefli, gegn Leikni R. 2014 og KA 2015. Markatalan í þessum 18 leikjum á Ólafsvíkurvelli var 43-10.

Næsti leikur Víkings í Pepsi-deildinni er gegn Breiðabliki á heimavelli á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×