Íslenski boltinn

Stjörnumenn að endurskrifa sögubækurnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurmark Atla Jóhannssonar á móti skoska liðinu Motherwell er ein eftirminnilegasta stund íslenska fótboltasumarsins 2014.
Sigurmark Atla Jóhannssonar á móti skoska liðinu Motherwell er ein eftirminnilegasta stund íslenska fótboltasumarsins 2014. Fréttablaðið/Daníel
Stjörnumenn voru búnir að bíða lengi eftir fyrsta Evrópuleiknum en þeir hafa nýtt fyrsta tækifærið sitt í Evrópuboltanum afar vel. Evrópuævintýrið í Garðabænum í ár er þegar orðið sögulegt en uppskera Stjörnumanna úr fyrstu fimm leikjum sínum í Evrópudeildinni er fjórir sigrar og ekki eitt einasta tap.

Það er sama hvar er komið niður í sögu íslensku liðanna í Evrópukeppninni því ekkert þeirra kemst með tærnar þar sem Stjörnumenn eru með hælana hvað varðar árangur í fyrstu leikjum félagsins í Evrópukeppni.

KR-ingar töpuðu sem dæmi fyrstu fimm Evrópuleikjum sínum með markatölunni 5–20, Skagamenn töpuðu fjórum af fyrstu fimm leikjum sínum og Valsmenn náðu ekki að vinna leik í fyrstu fimm Evrópuleikjum sínum frekar en KR, ÍA, Valur og Keflavík.

Blikar stóðu fremst fyrir „innrás“ Stjörnumanna á listann en Breiðablik vann tvo af fyrstu fimm Evrópuleikjum félagsins. Fylkismenn töpuðu reyndar aðeins tveimur af fyrstu fimm leikjum sínum en fögnuðu bara einum sigri.

Stjörnumenn voru þegar búnir að bæta afrek Fylkismanna (frá 2001) og Þórsara (frá 2012) með því að komast áfram í tveimur fyrstu umferðum sínum í Evrópukeppninni en Grindvíkingar komust einnig áfram eftir sigra í fyrstu tveimur Evrópuleikjum sínum þegar þeir tóku þátt í Intertoto-keppninni sumarið 2001.

Tveir 4–0 stórsigrar á velska liðinu Bangor City voru frábær byrjun hjá Stjörnuliðinu og dramatískur endurkomusigur á skoska liðinu Motherwell og stórbrotið sigurmark Atla Jóhannssonar voru einn af hápunktum íslenska fótboltasumarsins 2014.

Stjörnumenn eru hins vegar ekki hættir og 1–0 sigur á reynsluboltunum í Lech Poznan frá Póllandi er eitt af stærstu afrekunum í sögu íslenskra liða í Evrópukeppninni.

Lech Poznan hefur verið fastagestur í Evrópukeppninni síðustu ár og fór alla leið í sextán liða úrslit Evrópudeildarinnar 2010-11. Stjörnumenn verða þó að hafa varann á því pólska liðið hefur tapað á útivelli í síðustu tveimur umferðum sínum í Evrópukeppni en svarað því með sigri í heimaleiknum. Staðan er góð í hálfleik en það er mikið eftir enn.

Seinni leikurinn fer fram í Póllandi á fimmtudaginn í næstu viku og í boði er sæti í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Þar gæti beðið afar spennandi mótherji og möguleiki á að gera betur en FH-liðið sem var einu skrefi frá riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyrir ári.

Hver endirinn verður á þessu Evrópuævintýri verður að koma í ljós en það breytir ekki því að Stjörnumenn eru búnir að skrifa sig með stæl í sögubækurnar og það er frekar ólíklegt að fyrstu leikir félaga verði nokkurn tímann eins glæsilegir og hjá Garðbæingum í sumar.


Tengdar fréttir

Þetta er algjört ævintýri

Árangur Stjörnunnar er einstakur segir einn helsti knattspyrnusérfræðingur landsins og er sigurinn einn sá merkilegasti í íslenskri knattspyrnusögu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×