Innlent

Stéttarfélög að drukkna í málum sem snúa að ferðaþjónustu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Á síðustu fimm árum hefur störfum í ferðaþjónustu fjölgað um tæp fjörutíu prósent á meðan störfum í landinu hefur fjölgað um sex prósent.
Á síðustu fimm árum hefur störfum í ferðaþjónustu fjölgað um tæp fjörutíu prósent á meðan störfum í landinu hefur fjölgað um sex prósent. Vísir/Pjetur
Á síðustu fimm árum hefur störfum í ferðaþjónustu fjölgað um tæp fjörutíu prósent á meðan störfum í landinu hefur fjölgað um sex prósent. Stór hluti starfsfólks í ferðaþjónustu eru ungt fólk og erlendir ríkisborgarar. Þrír af hverjum fjórum starfsmönnum í veitingageiranum eru undir þrítugu og ríflega fjórðungur starfsmanna ferðaþjónustu eru útlendingar. Forsvarsmenn stéttarfélaga eru að drukkna í málum sem snúa að launarétti og félagslegu undirboði ferðaþjónustufyrirtækja. Fjallað var um málið í Kastljósi kvöldsins. 

Eitt af hverjum tíu störfum í landinu er talið vera í ferðaþjónustu og breytingin mikil á stuttum tíma. Stéttarfélög hafa ítrekað bent á bresti í kjaramálum starfsfólks ferðaþjónustunnar. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir aukið eftirliti hafa skilað árangri en að gera þurfi mun betur. Í flestum tilfellum er um að ræða grun um brot á ákvæðum um launakjör eða hvíldartíma. Oft er um að ræða útlendinga eða unga starfsmenn sem eru síður eða ómeðvitaðir um réttindi sín. 

Þá er einnig algengt að starfsfólki í ferðaþjónustunni séu boðin svokölluð jafnaðarlaun, sem ná oft ekki lágmarkskjarasamningum. Eigendur ferðaþjónustufyrirtækja hafa jafnvel í mörgum tilfellum auglýst eftir og nýtt sér erlenda sjálfboðaliða í vinnu, sem annars væri greitt fyrir.

Ríflega 22 þúsund manns starfa nú við ferðaþjónustu en fæstir hafa próf í greininni. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir það koma niður á greininni og að það kalli á endurskoðun á úreltu námskerfi. 

Í nýrri skýrslu stjórnstöðvar ferðamála er bent á að starfsmannavelta sé óvenju há í ferðaþjónustu. Með minnkandi atvinnuleysi er því spáð að erfitt geti verið að halda í starfsfólk, sérstaklega menntað eða faglært starfsfólk. Í skýrslunni kemur einnig fram að fæstir þeirra 22 þúsund einstaklinga sem starfa í ferðaþjónustu hér á landi hafi einhverskonar próf í greininni. 

Ástæðurnar eru meðal annars taldar vera skortur á starfsnámi. Það nám sem þegar er til staðar hefur ekki haldið í við mikinn vöxt innan greinarinnar. Aðsókn í þjónanám hefur þó aukist um fimmtíu prósent frá árinu 2011 og 22,5 prósent í kokkanám. Þrátt fyrir þá aukningu þyrfti að útskrifa sextíu þjóna árlega til að anna eftirspurn, í stað rúmlega tuttugu eins og nú er. Útskrifa þyrfti nær áttatíu kokka á ári en nú eru þeir rúmlega fimmtíu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×