Tónlist

Stelpur rokka! í Vestur-Afríku

Birta Svavarsdóttir skrifar
Lokatónleikar tógóísku rokksumarbúðanna eru í kvöld.
Lokatónleikar tógóísku rokksumarbúðanna eru í kvöld. Sól í Tógó
„Er gott samband, heyrirðu vel í mér? Heyrirðu í stelpunum spila í bakgrunninum? Þær eru alveg á fullu!“

Segir Áslaug Einarsdóttir, framkvæmdastýra Stelpur rokka!, í samtali við blaðamann Vísis, en hún er stödd í Tógó í Vestur-Afríku þar sem tógóískar stelpur á aldrinum 11-20 ára eru að taka þátt í rokksumarbúðum.

„Það eru þrjátíu stelpur sem eru að gista hérna og læra á hljóðfæri og þær eru búnar að stofna fjórar hljómsveitir. Þær eru alveg í skýjunum með þetta.“

Íslensku hljóðfærin prófuð.Sól í Tógó
Stelpur rokka! fagna fimm ára starfsafmæli um þessar mundir, en markmið samtakanna er að efla ungar stelpur í gegnum tónlistarsköpun. Meginstarf Stelpur rokka! eru rokksumarbúðir þar sem stelpur fá að læra á hljóðfæri, stofna hljómsveit, semja lag og spila á tónleikum fyrir fjölskyldu sína og vini.

„Stelpur rokka! og samtök sem heita Sól í Tógó eru að styðja þessar rokkbúðir hér í Tógó. Svo eru tíu tógóískar tónlistarkonur að skipuleggja og framkvæma búðirnar, meðal annars fyrsta kvennaband Tógó, hljómsveit sem heitir Bella Bellow.“

Fjórir fulltrúar frá Íslandi eru í búðunum, bæði frá Stelpur rokka! og Sól í Tógó. Öll hljóðfæri sem notuð eru í búðunum fengust í söfnun á íslandi sem Stelpur rokka! stóðu fyrir. „Já, við fengum hljóðfæri frá ýmsum aðilum, til dæmis Tónastöðinni. Svo sáu Pökkun og flutningar og Icelandair um að flytja þetta fyrir okkur og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir,“ segir Áslaug.

Sjá einnig: Safna hljóðfærum fyrir rokkbúðir í Tógó



Það er ekki algengt að tógóískar stelpur læri á hljóðfæri.Sól í Tógó
Lokatónleikar búðanna eru í kvöld og að sögn Áslaugar eru allar stelpurnar spenntar að spila og syngja. Margar stelpnanna eru í kór en fáar hafa spilað á hljóðfæri, enda tíðkast það ekki meðal kvenna í Tógó.

„Ein kennaranna sem spilar á bassa segir það býsna inngróið í menninguna að stelpur séu alls ekki hvattar til að spila á hljóðfæri, þær eigi frekar að vera heima og hugsa um heimilið.

Hægt er að sjá myndband úr búðunum hér að neðan.

Skráning stendur nú yfir í rokksmiðjur Stelpur rokka! sem hefjast í byrjun september. Smiðjurnar eru ætlaðar stelpum á aldrinum 10-16 ára og er meðal annars boðið upp á rappsmiðju, raftónlistarsmiðju og plötusnúðasmiðju. Skráning fer fram á heimasíðu Stelpur rokka, og eru niðurgreidd pláss í boði fyrir efnaminni stelpur.

Stelpur Rokka TÓGÓ - Sjálfboðaliðarnir from Davíð Alexander Corno on Vimeo.


Tengdar fréttir

Safna hljóðfærum fyrir rokkbúðir í Tógó

Samtökin Stelpur rokka! í samvinnu við Sól í Tógó og nokkrar tógóískar tónlistarkonur hafa hrint af stað söfnun á hljóðfærum fyrir opnun rokkbúða fyrir stelpur í Tógó í ágúst. Hægt verður að koma með rafmagnshljóðfæri í Tónastöðina til að leggja söfnuninni lið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×