Bílar

Stekkur yfir mótorhjól á ferð

Finnur Thorlacius skrifar
Milljónir manns hafa séð sænskan ofurhuga sem kallar sig Al the Jumper stökkva yfir hin ýmsu ökutæki á ferð sem kyrrstæð að undanförnu á Youtube.

Síðasta uppátæki hans var að stökkva yfir tvö mótorhjól á ferð og sést það hér. Síðastliðið sumar gerði hann sér lítið fyrir og stökk yfir Lamborghini Gallardo sportbíl sem kom að honum á 130 km hraða og fór heljarstökk í leiðinni.

Þar hefði hann eingöngu skaðað sig sjálfan ef eitthvað hefði farið úrskeiðis, en í þessu myndbandi eru mótorhjólamennirnir einnig í hættu. Það er alveg ljóst að stökkkraftur Al the Jumper er mikill og aðeins spurning hverju hann tekur uppá næst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×