Lífið

Steindi Jr og Tobba gefa dætrunum nöfn

Ellý Ármanns skrifar
Sigrún, Steindi og Ronja Nótt.
Sigrún, Steindi og Ronja Nótt.
Föstudaginn 25. júlí, gáfu bæði Tobba Marínós og Steindi Jr stúlkunum sínum nafn.  Bæði héldu þau nafnaveislur umkringd vinum og ættingjum en þó ekki saman.

Steindi dreifði skafmiðum í veislunni og það var góður vinur foreldranna sem fékk nafn stúlkunnar - Ronja Nótt - á skafmiðanum sínum.

,,Það var enginn annar en Sverrir Bergmann sem fékk nafnið á skafmiðanum sínum við mikil fagnaðarlæti. Ronja Nótt biður að heilsa, " skrifaði Steindi á Facebooksíðuna sína með mynd af dóttur hans og Sigrúnar Sigurðardóttur.



Tobba og Kalli, nýbakaðir foreldrar, geisla af hamingju þessa dagana.
Sama dag gáfu Tobba Marinós og Karl Sigurðsson dóttur þeirra nafnið Regína Birkis. Systir Tobbu heitir Regína en nafnið Birkis er ættarnafn Tobbu.


Tengdar fréttir

Tobba orðin móðir

Tobba Marinós og Karl Sigurðsson eignuðust dóttur á sunnudagskvöld og er stúlkan fyrsta barn þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×