Tónlist

Steinar með nýtt lag: Mætir á Mýrarboltann til að taka upp nýtt myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steinar er frábær söngvari.
Steinar er frábær söngvari.
Tónlistarmaðurinn Steinar hefur gefið frá sér nýtt lag sem ber nafnið Young. Steinar er fyrir löngu orðinn landsþekktur fyrir sína þekktu poppslagara og að þessu sinni fær hann aðstoð frá Stony í laginu.

Steinar kemur fram á Mýrarboltanum á morgun þar sem hann verður með hljómsveit með sér og þar ætlar hann sér að taka nýtt efni og frumflytja.

Tónlistamaðurinn verður með myndatökumann með sér á Mýrarboltanum og mun hann taka upp nýtt tónlistarmyndband við lagið Young.

Hér að neðan má heyra nýja lagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×