Bílar

Stefna á mikla fjölgun rafbíla

Grétar Þór Sigurðsson skrifar
Rafbíllinn Porche Mission E.
Rafbíllinn Porche Mission E.
Porsche hefur sett stefnuna á að allt að helmingur framleiddra Porsche-bíla árið 2025 verði knúnir rafmagni, annaðhvort að hluta til eða að öllu leyti.

Hlutfallið er tvöfalt hærra heldur en fyrirtækið spáði um í síðasta mánuði að því er fram kemur á vef Bloomberg.

Í viðtali við Detlev von Platen, framkvæmdastjóra hjá Porsche, kemur fram að söluaukninguna í þessum flokki megi fyrst og fremst rekja til kínverska markaðarins.

Aðgerðir stjórnvalda þar í landi til þess að draga úr mengun hafi haft þau áhrif að sala rafmagnsbíla sé að aukast og muni halda því áfram. Þar að auki sé verið að breyta lúxusskatti á dýra bíla sem mun ýta undir sölu fyrirtækisins í Kína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×