Íslenski boltinn

Stefán tekur við Haukaliðinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stefán er til vinstri á myndinni.
Stefán er til vinstri á myndinni. mynd/haukar.is
Stefán Gíslason, fyrrum landsliðsmaður, var í dag ráðinn þjálfari karlaliðs Hauka í knattspyrnu.

Stefán tekur við liðinu af Luka Kostic og Þórhalli Dan Jóhannssyni. Kjartan Stefánsson mun halda áfram að þjálfa kvennalið Hauka.

Stefán lauk UEFA A þjálfaragráðunni hjá KSÍ í vor og hellir sér nú í þjálfun af fullum krafti.

Stefán hóf atvinnumennskuferilinn í Englandi 16 ára gamall og þá hefur hann spilað í Noregi, Danmörku, Austurríki og Belgíu. Stefán hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands og á rétt rúma 30 A-landsleiki fyrir Ísland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×