Lífið

Stefán Karl höndlar ekki frægðina

Bjarki Ármannsson skrifar
Grænir fingur Stefáns vekja athygli.
Grænir fingur Stefáns vekja athygli. Vísir
Stefán Karl Stefánsson leikari prýðir forsíðu tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn en líkt og Fréttablaðið greindi nýverið frá, fékk Stefán inngöngu í Landbúnaðarháskóla Íslands á dögunum og hefur komið sér upp glæsilegum garði fyrir leigusala sína.

Á Facebook-síðu sinni deilir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona og eiginkona Stefáns, bráðfyndnu myndbandi þar sem Stefán skoðar sjálfan sig á forsíðu blaðsins. Þó að hann sé landsþekktur fyrir leik sinn, virðist Stefán eiga erfitt með frægðina og viðurkenninguna sem felst í því að rata á forsíðu Sumarhússins og garðsins.

Myndbandið er stutt og skemmtilegt og má sjá hér fyrir neðan.

Stefán á erfitt með að höndla frægðina sem fylgir því að vera á forsíðu Sumarhúsið og garðurinn.

Posted by Steinunn Olina Thorsteinsdottir on 6. júlí 2015

Tengdar fréttir

Glanni glæpur með græna fingur

Leikarinn Stefán Karl Stefánsson er á leið í nám við Landbúnaðarháskóla Íslands í ylrækt. Gerir ráð fyrir að leiklistin muni víkja hægt og rólega fyrir ylræktinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×