Lífið

Standa fyrir alvöru James Bond partýi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daniel Craig leikur aðalhlutverkið í nýjustu James Bond myndinni.
Daniel Craig leikur aðalhlutverkið í nýjustu James Bond myndinni.
Sony á Íslandi ætlar að slá upp alvöru partýi í Safnahúsinu við Hverfisgötu en tilefnið er nýr Sony Mobile snjallsími sem er að koma á markaðinn.

Þema kvöldsins verður James Bond en nýjasta myndin um njósnara hennar hátignar verður frumsýnd í næstu viku og er Sony einn af styrktaraðilum myndarinnar.

Gæði Sony snjallsímana hafa tekið kipp undanfarin misseri og hafa þeir náð að setja saman virkilega fallega hönnun í takt við góða  eiginleika.

Nýjustu tæki sem Sony Mobile er að koma með í sölu eru úr Z5 línunni. Þar eru þrír snjallsímar hver öðrum stærri en hver með sína eiginleika.

Allir eiga þeir það sameiginlegt að vera með 23MP myndavél sem zoomar á 0,03 sekúndum, nýjasta Octa-core örgjörvanum, fingrafaraskanna, allt að 2 daga rafhlöðuendingu og vatnsvörn.

Partýið hefst klukkan 20.00 í kvöld en hér er hægt að skrá sig. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×