Innlent

Staðan gæti breyst í vor

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Niðurstöður könnunar á fylgi flokka benda til lítilla breytinga frá kosningum.
Niðurstöður könnunar á fylgi flokka benda til lítilla breytinga frá kosningum.
Niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis bendir ekki til þess að miklar breytingar yrðu á Alþingi ef kosið væri í dag, einum og hálfum mánuði eftir að kosningar fóru fram. Niðurstöðurnar benda til þess að sjö flokkar myndu aftur fá kjörna fulltrúa á þing. Sjálfstæðisflokkurinn yrði stærsti flokkurinn, VG næststærsti og Píratar yrðu þriðji stærsti flokkurinn. Björt framtíð, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn yrðu allir svipaðir að stærð. Þá benda niðurstöðurnar til þess að formannsskipti í Samfylkingunni hafi ekki haft mikil áhrif á fylgi flokksins. Hann er enn minnsti flokkurinn.

Rúmlega einn og hálfur mánuður er liðinn frá kosningum, án þess að nokkuð útlit sé fyrir að ný stjórn líti dagsins ljós á næstunni. Forystumenn nokkurra stjórnmálaflokka eru því farnir að ræða möguleikann á því að kjósa aftur. En spyrja má, miðað við niðurstöður könnunarinnar, hvort nýjar kosningar myndu breyta stöðunni á Alþingi á þann veg að auðveldara væri að mynda ríkisstjórn.

Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.VÍSIR/SKJÁSKOT
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, telur að staðan gæti breyst ef boðað yrði til nýrra kosninga í vor. „Þótt fylgið hafi ekki farið mikið á hreyfingu á þessum dögum sem liðnir eru frá kosningum þá myndi ég gera ráð fyrir að kosningar næsta vor gætu skilað niðurstöðu sem væri töluvert frábrugðin því sem mælist í dag. Og þá færi það töluvert eftir því hvernig þessir flokkar spila úr þeirri stöðu sem uppi er núna,“ segir hann. Enn sé ekki komin nægjanleg reynsla á það.

Eiríkur Bergmann segir stöðu Sjálfstæðisflokksins í þessari könnun vera mjög sterka. „Ég myndi halda að langvarandi stjórnarkreppa sem myndi leiða til kosninga næsta vor myndi einkum gagnast hefðbundnu flokkunum. Þeir gætu styrkst í sessi og nýrri flokkarnir átt erfiðara uppdráttar,“ segir hann og bendir á að Píratar mælist örlítið lægri.

Í undirfyrirsögn í frétt um könnunina í gær var fullyrt að hún benti til þess að ekki væri möguleiki á myndun tveggja flokka stjórnar. Það er rangt, Sjálfstæðisflokkurinn og VG, fengju samanlagt 34 þingmenn og gætu myndað meirihluta.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×