Innlent

Sprenging á Nesjavöllum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Brunavarnir Árnessýslu og lögreglan voru kölluð út vegna sprengingarinnar á Nesjavöllum.
Brunavarnir Árnessýslu og lögreglan voru kölluð út vegna sprengingarinnar á Nesjavöllum. mynd/ GVA.
Sprenging varð við Nesjavallarvirkjun um hálfellefuleytið í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti varð sprengingin í tengivirki við streng eitt. Ein vél bilaði við óhappið en hún mun vera komin í gagnið aftur samkvæmt upplýsingum Vísis.

Brunavarnir Árnessýslu sendu dælubíl og sjúkrabíl á staðinn, auk þess sem lögreglan kannaði aðstæður. Það mun vera hefðbundin vinnubrögð að kalla til viðbragðsaðila þegar óhapp af þessu tagi verður hjá Landsneti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×