Lífið

Spjalla saman um hinsegin bókmenntir

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Ásta Kristín Benediktsdóttir er íslensku- og bókmenntafræðingur sem vinnur að doktorsritgerð um samkynja ástir og hómóerótík í verkum Elíasar Mar.
Ásta Kristín Benediktsdóttir er íslensku- og bókmenntafræðingur sem vinnur að doktorsritgerð um samkynja ástir og hómóerótík í verkum Elíasar Mar. Mynd/Ásta Kristín Benediktsdóttir
Í dag á Kaffislipp fer fram viðburðurinn Hinsegin bókmenntaspjall á vegum Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO – en á Kaffislipp fara reglulega fram bókmenntaviðburðir af ýmsum toga.

„Þetta er spjall þar sem ég og kanadíski rithöfundurinn Betsy Warland ætlum að ræða nýjustu bók hennar, Oscar of between, og hinsegin bókmenntir á Íslandi og í Kanada og hvaða gildi skrifleg tjáning hefur fyrir hinsegin fólk og reynslu þess,“ segir Ásta Kristín Benediktsdóttir, íslensku- og bókmenntafræðingur. Hún situr í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík og ritstýrir tímariti hátíðarinnar. Ásta vinnur að doktorsritgerð um samkynja ástir og hómóerótík í verkum Elíasar Mar og er einn ritstjóra greinasafns um hinsegin sögu sem kemur út á næsta ári.

„Betsy er kanadískur rithöfundur af norskum ættum sem hefur gefið út 12 bækur, hefur verið mjög lengi með námskeið í skapandi skrifum og hefur unnið mikið með öðrum rithöfundum. Hún hefur skrifað bæði ljóðabækur og ritgerðir, hún hefur ritstýrt alls konar söfnum af ljóðum. Þessi bók hennar sem er að koma út núna er ekki hefðbundin endurminningabók heldur er skáldleg virkni í textanum – í þessari bók skrifar hún um sína reynslu af því að upplifa sig hvorki sem konu né karl heldur einhvers staðar þar á milli, það er að segja að finnast kynjahólfin ekki passa sér.“

Spjallið mun fara fram í dag klukkan 16.30 á Kaffislipp á Hótel Marina við Reykjavíkurhöfn. Það er frítt inn á þennan viðburð og allir eru að sjálfsögðu velkomnir. Athugið að dagskráin fer fram á ensku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×