Lífið

Space Jam 2 loksins væntanleg?

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Svona geta gárungarnir sér til um að væntanleg auglýsing fyrir myndina gæti litið út.
Svona geta gárungarnir sér til um að væntanleg auglýsing fyrir myndina gæti litið út. Mynd/Roadshow
Nú er talið að framhald hinnar geysivinsælu geimkörfuboltateiknimyndar Space Jam gæti loks verið að líta dagsins ljós eftir þráláta og loðna orðróma þess efnis á síðustu misserum.

Það sem meira er, allar líkur eru taldar á því að körfuboltamaðurinn Lebron James muni fara með aðalhlutverkið á samt þeim Kalla Kanínu, Oddi önd og öllum hinum í Looney Tunes-genginu.

Framleiðslufyrirtækið Warner Bros tilkynnti í gær að það hefði hafið „fordæmalaust“ þróunarsamstarf við fyrrnefndan James sem spannaði fjölbreytt verkefni. Þó svo að tilkynningin frá fyrirtækinu hafi verið rýr var þó tekið fram að „hins skapandi fótspors“ körfuboltastjörnunnar myndi gæta „á öllum sviðum“ fyrirtækisins.

Þá endurnýjaði Warner Bros höfundarrétt sinn á Space Jam í liðnum mánuði og er þetta allt talið renna stoðum undir þann orðróm að framhald sé væntanlegt og að James fari með aðalhlutverkið. Körfuboltamaðurinn hefur ætíð neitað orðrómum þess efnis en hann gaf þó í skyn í fyrra að hann myndi ekki hafna tækifærinu, ef það byðist.

„Ég hef ætíð elskað Space Jam. Hún var ein uppáhalds bíómyndin mín þegar ég var að vaxa úr grasi. Ef ég fengi tækifærið, þá væri það frábært,“ sagði James í samtali við South Florida Sun Sentinel.



Space Jam kom út árið 1996 og fjallar í aðra röndina um ákvörðun körfuboltagoðsagnarinnar Michael Jordan að leggja körfuboltaskóna á hilluna
og taka sér hafnaboltakylfu í hönd. Það skapaði honum töluverðar óvinsældir á sínum tíma og er allar götur síðan talið að samstarf hans og Kalla kanínu hafi verið til þess að lagfæra orðspor hetjunnar.

Lebron James bakaði sér sömuleiðis töluverðar óvinsældir þegar hann sagði skilið við Cleveland Cavaliers árið 2010. Gæti Space Jam 2 fjallað um þá ákvörðun? Það getur aðeins tíminn leitt í ljós.











Fleiri fréttir

Sjá meira


×