Tónlist

Spá Maríu öruggri leið í úrslitin

Birgir Olgeirsson skrifar
María Ólafs á nokkuð greiða leið í úrslit Eurovision ef marka má greiningu ESCToday.
María Ólafs á nokkuð greiða leið í úrslit Eurovision ef marka má greiningu ESCToday. Vilhelm
María Ólafsdóttir á greiða leið í úrslit söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, ef marka má greiningu síðunnar ESCToday.

Matið er byggt á tölfræði og líkindum út frá gengi laga í undanriðlum Eurovision síðustu ára og hefur ekkert með gæði þeirra að gera. Bendir ritstjóri ESCTodayHelio Qendro, á að lagið sem er númer fjórtán í röðinni í öðrum hvorum undanriðlinum sé ekki endilega alltaf það besta en þó eigi það mestu líkurnar á að komast upp úr undanriðlinum því það er jafnan flutt þegar mesta áhorfið er á keppnina.

Þau lönd sem komast upp úr fyrri undanriðlinum samkvæmt þessum útreikningum eru: Armenía, Grikkland, Eistland, Tékkland, Ungverjaland, Danmörk, Albanía, Rúmenía og Georgía.

Löndin sem komast upp úr seinni undanriðlinum eru: Írland, Noregur, PortúgalMakedónía, Lettland, Ísland, Svíþjóð, Sviss, Kýpur og Pólland.

Sjá einnig:María tólfta á svið

Best að vera fjórtándi í röðinni

85 prósent líkur eru á því að Albanía og Sviss fari upp úr sínum undanriðlum en bæði löndin eru þau fjórtándu í röðinni til að stíga á svið í fyrri og seinni undanriðlunum. Þau lönd sem hafa verið númer fjórtán í röðinni hafa 12 sinnum komist upp úr sínum riðlum í 14 tilraunum. María verður tólfta á svið í seinni undariðlinum.

Fulltrúi Moldavíu verður fyrstur á svið í fyrri undanriðlinum og fulltrúi Georgíu síðastur á svið og eru um helmingslíkur á að þær þjóðir sem eru fyrstar og síðastar á svið fari upp úr riðlinum. Í seinni undanriðlinum fellur það í skaut Pólverja og Slóvena að vera fyrstir og síðastir á svið.

YouTube-áhorfið talið gefa góða vísbendingu

Þá horfir ESCToday einnig til fjölda áhorfa á YouTube-myndbönd keppenda í Eurovision og er bent á að þeir sem hafa unnið keppnina í gegnum árin hafi verið afar vinsælir á YouTube í aðdraganda hennar. Eru nefndir sem dæmi sigurvegarar á borð við Conchitu WurstEmmelie de Forest og Loreen ásamt rússnesku ömmunum sem urðu í öðru sæti árið 2012.

Samkvæmt YouTube-áhorfi þá eru þessar þjóðir öruggar áfram úr fyrri undanriðlinum: 

1. Rússland - 1.744.033

2. Albanía - 855.146

3. Armenía 779.617

4. Georgía - 404.279

5. Eistland - 375.343

6. Belgía - 357.343

7. Hvíta-Rússland - 272.353

8. Makedónía - 248.466

9. Serbía - 146.615

10. Moldavía - 129.341

Þessar þjóðir eru öruggar áfram úr seinni undariðlinum samkvæmt YouTube-áhorfi: 

1. Aserbaídsjan 421.180

2. Svíþjóð  - 331.131

3. Malta - 262.831

4. Ísrael - 252.625

5. Ísland - 228.667

6. Svartfjallaland - 133.779

7. Noregur - 130.804

8. Tékkland - 114.661

9. Litháen - 107.245

10. Slóvenía - 90.086.

Sjá einnig:Heyrðu öll lög í Eurovision 2015 hér

Keppnin í ár ein sú hægasta

Þá er einnig horft til hraða laganna í undanriðlunum en meðalhraði þeirra í ár eru 99 slög á mínútu og keppnin sögð ein sú hægasta undanfarinna ára. Til samanburðar má nefna að flest lög sem eru í útvarpsspilun í dag eru með 128 slög á mínútu að jafnaði. 

ESCToday segir hraða laganna ekki hafa mikið um gæði þeirra að segja en þau sem eru „hressari“ eru talin eiga meiri líkur á góðum árangri í þessari löngu keppni.

Slög á mínútu í fyrri undanriðlinum:

Moldavía 103 slög

Armenía 121 slag

Belgía 90 slög

Finnland 95 slög

Grikkland 95 slög

Eistland 69 slög

Makedónía 120 slög

Serbía 129 slög

Ungverjaland 95 slög

Hvíta-Rússland 130 slög

Rússland 74 slög

Danmörk 125 slög

Rúmenía 98 slög

Georgía 71 slag

Samkvæmt þessu þá eru líkur Armeníu, Makedóníu, Serbíu, Hvíta-Rússlands og Danmerkur ágætar eftir horft er til slaga á mínútu.

Slög á mínútu í seinni undanriðlinum: 

Litháen 128 slög

Írland 79 slög

San Marínó 77 slög

Svartfjallaland 97 slög

Malta 76 slög

Noregur 128 slög

Portúgal 109 slög

Tékkland 123 slög

Ísrael 115 slög

Lettland 108 slög

Aserbaídsjan 106 slög

Ísland 97 slög

Svíþjóð 124 slög

Sviss 70 slög

Kýpur 90 slög

Slóvenía 79 slög

Pólland 82 slög

Í seinni undanriðlinum gætu því Litháen, Noregur, Tékkland, Ísrael og Svíþjóð fengið einhver atkvæði fyrir að koma áhorfendum í gírinn og er Ísland einnig inni í þeim pakka ásamt Svartfjallalandi og Aserbaídsjan.

Íslandi spáð í úrslit

Samkvæmt þessari greiningu allri frá ESCToday þá eru líkur Armeníu, Eistlands, Rússlands og Albaníu ansi góðar í fyrri undanriðlinum. Aðrir sem eiga ágætis líkur í þeim riðli eru Makedónía og Georgía en talið er að Danmörk, Hvíta-Rússland og Moldavía geti komið á óvart.

Í seinni undariðlinu er talið að Svíþjóð, Noregur, Ísland og Ísrael eigi greiða leið í úrslitin en á eftir þeim koma Aserbaídsjan, Tékkland, Malta og Slóvenía. 

Sjá spá ESCToday hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×