Innlent

Sóttvarnalæknir segir enga ástæðu til að flýta bólusetningu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Barnið sem greindist með mislinga var óbólusett vegna ungs aldurs. Sóttvarnalæknir segir enga ástæðu til þess að flýta bólusetningu.
Barnið sem greindist með mislinga var óbólusett vegna ungs aldurs. Sóttvarnalæknir segir enga ástæðu til þess að flýta bólusetningu.
Sóttvarnalæknir segir enga ástæðu til þess að flýta 18 mánaða bólusetningu gegn mislingum vegna þess eina tilfellis sem greindist hér á landi á dögunum. Þá segir hann að ekki sé ráðlagt að bólusetja börn yngri en 9 mánaða vegna þess að litlar líkur séu á að bóluefnið virki hjá svo ungum börnum.

Þetta kemur fram á heimasíðu landlæknis, en greint var frá því í gær að níu mánaða barn hefði greinst með mislinga hér á landi eftir ferðalag í Taílandi fyrr í mánuðnum. Sóttvarnalæknir segir einu ástæðurnar til að flýta 18 mánaða bólusetningunni eftirfarandi:

Börnum 9 mánaða eða eldri sem á undangengnum þremur dögum hafa umgengst einstakling með staðfesta mislinga.

Börnum 9 mánaða eða eldri sem líklega munu komast í tæri við mislinga t.d. vegna ferðalaga.

Ef fleiri mislingatilfelli fara að greinast hér á landi þá getur þurft að hefja bólusetningu hjá yngri börnum en það verður þá tilkynnt sérstaklega.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×