Lífið

Sonurinn sáttur með bikara Hönnu Rúnar og Nikita

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Hanna Rún, Nikita og Vladimir Óli.
Hanna Rún, Nikita og Vladimir Óli.
Dansparið Hanna Rún Bazev Óladóttir og Nikita Bazev vann bikarmeistaramótið í latínu dönsum í flokki fullorðinna í gær.

Hanna Rún var að vonum ánægð með árangurinn og birti status á Facebook síðu sinni þar sem hún þakkaði öllum kærlega fyrir stuðninginn.

Sérstaklega nefndi hún foreldra sína og þakkaði þeim fyrir að passa son hennar og Nikita, Vladimir Óla á meðan foreldrarnir dönsuðu sig til sigurs.

Hanna Rún sagði soninn alltaf sömu hetjuna og að hann væri rosalega sáttur með bikarana sem hann fékk í safnið sitt.

Icelandic Cup Champions 2015 Vladimir Óli to busy checking his new cups ❤

Posted by Nikita Bazev and Hanna Run Bazev on Sunday, April 26, 2015

Tengdar fréttir

Dansmömmurnar sökuðu Hönnu Rún um að sofa hjá dómurunum

Hanna Rún Bazev Óladóttir fékk slæma útreið í kjölfar Ísland Got Talent á sunnudag. Hún er ekki alls kostar óvön skítkastinu og hefur barist við Gróu á Leiti síðan hún var barn. Hanna horfir út fyrir landsteinana í átt að tækifærum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×