Lífið

Sonur Guðjóns Vals reyndi að girða niður um pabba sinn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þetta var heiðarleg tilraun.
Þetta var heiðarleg tilraun. Skjáskot
Guðjón Valur Sigurðsson handboltamaður var að skrifa eiginhandaráritanir handa aðdáendum þegar sonur hans ákvað að reyna að hrekkja föður sinn. Sonur hans gekk upp að honum og gerði heiðarlega tilraun til þess að girða niður um pabba sinn fyrir framan aðdáendurna.

Atvikið gerðist eftir leik Rhein-Neckar Löwen gegn Hannover-Burgdorf í þýsku 1. deildinni í handbolta í gærkvöldi, en Löwen vann leikinn, 34-30. Guðjón átti góðan leik og skoraði sjö mörk.

Tilraun sonar hans gekk þó ekki en bæði honum og Guðjóni var skemmt. Guðjón Valur birti svo myndband af atvikinu á Instagram síðu sinni sem sjá má hér að neðan:

Pulling your parents down in public=classic #hannstopparaldrei #ertilpásutakkiábörnum #fatherandson

A video posted by Gudjon Valur Sigurdsson (@gudjonvalur9) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×