Lífið

Söngvakeppnin hitar aðdáendur upp með dularfullri mynd

Birgir Olgeirsson skrifar
Samsetta myndin sem Söngvakeppni Sjónvarpsins birti á Facebook-síðu sinni.
Samsetta myndin sem Söngvakeppni Sjónvarpsins birti á Facebook-síðu sinni.
Nú styttist óðum í Söngvakeppni Sjónvarpsins en í hádeginu var birt afar dularfull mynd á Facebook-síðu keppninnar.

Það verður ekki annað ráðið í þessa mynd en þar sé búið að gera samsett mynd af öllum þeim keppendum sem munu taka þátt í ár en á myndinni er borin upp sú spurning: Hverjir taka þátt í Söngvakeppninni 2017?

Keppendurnir verða kynntir til leik í þætti í Sjónvarpinu föstudagskvöldið 20. janúar klukkan 19:40.

Nú er það hins vegar spurningin hvort lesendur geti séð út úr þessari mynd hverjir munu taka þátt?


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×