Lífið

Söng Alicia Keys lag fyrir Alicia Keys og allt varð vitlaust

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlegur flutningur.
Ótrúlegur flutningur. vísir
Lauren Diaz mætti í raunveruleikaþáttinn The Voice í vikunni og sló heldur betur í gegn.

Alicia Keys er ein af dómurum þáttarins og tók Diaz lagið If i ain´t got you sem Keys gerði heimsfrægt á sínum tíma.

Keys var fyrsti dómarinn sem ýtti á takkann og stóll hennar snérist. Hún varð gjörsamlega dolfallinn af rödd Diaz og hrósaði henni í hásterkt.

Diaz hefur slegið í gegn um heim allan og þegar þessi frétt er skrifuð hafa 23 milljónir horft á myndbandið á Facebook. Myndbandið var sett inn í gær. Dómarar þáttarins í ár eru þau Adam Levine, Blake Shelton, Miley Cyrus og Alicia Keys.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×