Innlent

Sólveig Pálsdóttir frá Svínafelli látin

Sólveig Pálsdóttir frá Svínafelli í Öræfum lést í gærkvöldi, en hún náði því fyrr í þessum mánuði að verða elsti Íslendingur sögunnar. Hún varð 109 ára þann 20. ágúst s.l. Sólveig dvaldi á Hjúkrunarheimili Suðausturlands frá 96 ára aldri þar til hún lést. Hún hélt hún upp á aldursmetið fyrr í þessum mánuði í hópi vina og vandamanna og ræddi þá meðal annars við fjölmiðla.

Jóhanna Gunnarsdóttir, dóttir Sólveigar, sagði þá að heilsa móður sinnar væri ágæt miðað við aldur. „Móðir mín ólst upp á Hofi í Öræfum en bjó lengst af á Svínafelli ásamt föður mínum Gunnari Jónssyni en hann lést árið 1967. Þau hjónin eignuðust sjö börn sem eru öll á lífi," sagði Jóhanna.

 

Jóhanna sagði að áhugamál móður sinnar hefðu lengst af verið bústörf ásamt lestri. Sennilega mætti þakka reglusömu líferni móður hennar þennan háa aldur. Afkomendur Sólveigar eru um 70 talsins.

Aðeins einn íslendingar hefur náð 109 ára aldri fyrir utan Sólveigu en það var Guðfinna Einarsdóttir frá Leysingjastöðum í Dalasýslu sem lést 1. apríl síðastliðinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×