Innlent

Sóknarprestur kosinn í ágúst

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Seljakirkja Prestkosningar fara fram í ágúst. Fréttablaðið/ Auðunn
Seljakirkja Prestkosningar fara fram í ágúst. Fréttablaðið/ Auðunn
Sóknarprestur í Seljakirkju verður kosinn þann 16. ágúst næstkomandi. Þrír umsækjendur sóttu um stöðuna.

Það eru þeir Ólafur Jóhann Borgþórsson, núverandi prestur í kirkjunni, Fritz Már Berndsen Jörgensson guðfræðingur og séra Hans Markús Hafsteinsson Isaksen. Hjördís Stefánsdóttir, formaður kjörstjórnar, segir að kosningarnar verði auglýstar næstu daga. Kosningarnar munu fara fram í safnaðarheimili kirkjunnar.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla mun hefjast 5. ágúst. Kosningarnar eru haldnar að frumkvæði sóknarbarna í Seljasókn en tæplega helmingur þeirra krafðist kosninganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×