Innlent

Sóknarprestur: Kirkjan ætti að vera griðastaður flóttamanna

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Kirkjan ætti að vera griðastaður flóttamanna þar sem þeir fá aðstoð meðan mál þeirra eru afgreidd af yfirvöldum. Þetta segir sóknarprestur Laugarneskirkju sem lét sig málið varða í nótt.

Stundin greindi frá því í morgun og birti myndband af brottvísun og handtöku tveggja hælisleitenda frá Írak en umsókn þeirra um vernd hér á landi hefur ekki verið tekin til efnislegar meðferðar af Útlendingastofnun.

Sóknarprestur Laugarneskirkju og prestur innflytjenda á Íslandi opnuðu kirkjuna upp úr klukkan 4 í nótt og mættu þeir ásamt fleirum, í von um að lögregla og útlendingastofnun myndu veita hælisleitendunum grið fyrir brottvísun þeirra til Noregs.

En hvernig upplifði Kristín Þóra Tómasdóttir, sóknarprestur aðgerðirnar í nótt?

„Hún var mjög ákveðin og harkaleg. Auðvitað er lögreglan bara send til að fullnægja brottvísunarákvörðun en það var mjög sérstök upplifun og snerti alla sem voru viðstaddir að sjá þessa ungu með hreinlega dregna héðan aftan frá altarinu og fram kirkjugólfið og út í lögreglubíl.”

Óskráðar og óformlegar reglur um að kirkjan sé griðastaður voru í gildi hér á árum áður og eru enn virtar upp að vissu marki í sumum Evrópuríkjum en svo virðist ekki vera hér á landi.

„Við vildum láta á það reyna hvort að með því að láta fórna hugmynd um kirkjugrið ætti enn þá upp á pallborðið hjá lögreglunni.

Við satt að segja undirbjuggum þetta í náinni samvinnu við biskup Íslands og hún styður þetta af heilum hug og hefur sjálf lýst yfir áhyggjum af meðferð flóttafólks á Íslandi.”

En er þetta eitthvað sem kirkjan mun gera meira af?



„Við ætlum að skoða það. Það getum mjög vel verið. Við reynum að sjá þá sem einstaklinga og mæta þeim hverjum og einum út frá þeirra eigin reynslu vegna þess að það er svo auðvelt að senda þá til baka og beita Dyflinnarreglugerðinni þannig og taka þá enga ábyrgð á því sem gæti gert fyrir þá.”


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×