Bílar

Sóðum refsað grimmilega

Finnur Thorlacius skrifar
Flestum okkar er afar illa við að sjá ökumenn henda rusli úr bílum sínum, en þessi mótorhjólamaður tekur málin beinlínis í sínar hendur og hvar annarsstaðar en í Rússlandi. Með myndavél á hjálminum ók hann um göturnar í ónefndri rússneskri borg, tók upp það rusl sem hent hafði verið úr bílum nokkurra ökumanna, elti þá og henti því aftur inn í bílana.

Ekki nóg með að með því sé réttlætinu fullnægt þá fá sumir af þessum sóðalegu ökumönnum innihaldið yfir sig á sóðalegan en ansi skondinn hátt. Kannski er þessi siður til eftirbreytni, sérstaklega ef hann skildi verða til þess að þeir hinir sömu sem sjá sóma sinn í að sóða út umhverfi sitt breyti um siði. Myndskeiðið sem fylgir sýnir þessar skondnu aðfarir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×