Tónlist

Snoop Dogg reykti gras í Hvíta húsinu

Snoop
Snoop Vísir/Getty
Í síðasta þætti GGN News sem Snoop Dogg stýrir var Jimmy Kimmel gestur hans í stúdíói og spurði rapparann hreint út hvort hann hefði reykt gras í Hvíta húsinu.

„Á baðherberginu. Ekki í Hvíta húsinu, en á baðherberginu þar,“ sagði Snoop.

„Ég sagði, má ég nota baðherbergið? Og þau sögðu, Ætlarðu að gera númer 1 eða númer 2? Ég sagði, númer 2,“ útskýrði hann fyrir Kimmel, og bætti við að það hefði annaðhvort verið CIA eða FBI sem hefðu spurt hann út í klósettferðina.

„Svo bætti ég við að þegar ég væri að gera númer 2 væri venjan að ég fengi mér sígarettu eða kveikti í einhverju til að ná stemmingunni réttri. Og þeir sögðu að ég mætti kveikja í servíettu og ég samþykkti það. Og þetta er servíettan,“ sagði Snoop og tók upp jónu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×