Innlent

Smakkaði ekki kökuna fyrr enn eftir sigurinn

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Orri, Auður og Davíð, höfundur köku ársins.
Orri, Auður og Davíð, höfundur köku ársins. vísir/óskar p. friðriksson
„Við vorum að fara út á bardaga Gunnars Nelson og degi áður, en við fórum upp á land til að fljúga út, þá sendi hann þessa köku inn í keppnina. Hann náði því aldrei að smakka sigurkökuna. Ég er auðvitað ekki hlutlaus, hann er mjög góður í því sem hann gerir,“ segir Auður Ósk Vilhjálmsdóttir, kærasta Davíðs Arnórssonar, höfundar köku ársins.

Skötuhjúin opnuðu bakaríið Stofan bakhús í maí síðastliðnum ásamt bróður Davíðs, Orra, sem einnig er bakari. Þeir bræður sendu hvor sína kökuna í keppnina en höfðu verið að vinna að sameiginlegri tillögu þegar Davíð fékk hugmyndina að sinni köku.

Keppnin var haldin í samstarfi við Mjólkursamsöluna og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi skyr þaðan. Sigurkakan er lagskipt og í henni er meðal annars möndlu­kókosbotn, hindberjahlaup og skyrfrómas með lime með mjólkursúkkulaðihjúp yfir. Þetta er í fyrsta sinn sem kaka ársins kemur ekki frá bakaríi á höfuðborgarsvæðinu.

„Það er mikil gróska í matarmenningunni í Vestmannaeyjum. Hér eru komnir margir góðir staðir, og það er meira en að segja það að halda úti svona rekstri, með svona lélega höfn. Þótt Landeyjahöfn sé léleg hefur hún gert ótrúlega mikið fyrir samfélagið hér og það er mikill uppgangur – aðallega í veitingageiranum.“

Hún bendir á að þegar Herjólfur siglir ekki frá Landeyjahöfn sé mun minna að gera. „Hér fáum við þungar vikur þegar Landeyjahöfn er lokuð. Þá kemur stífla í allan rekstur á eyjunni. Þetta batnar með nýrri ferju, vonandi.“

Dómarar í keppninni um köku ársins þetta árið voru Margrét Kristín Sigurðardóttir frá Samtökum iðnaðarins, Aðalsteinn Magnússon, sölustjóri hjá Mjólkursamsölunni, og Gunnar Örn Gunnarsson, bakarameistari og sölumaður hjá Ölgerðinni.

Sala á kökunni hefst í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara á föstudag og verður til sölu það sem eftir er ársins.

Fyrsta kakan verður afhent Elizu Reid, forsetafrú Íslands, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×