Innlent

Sluppu ómeiddar þegar eldur kom upp í bíl þeirra

Tvær ungar konur sluppu ómeiddar þegar eldur kviknaði undir vélarhlíf á bíl þeirra, þegar honum var ekið eftir Svínahrauni á Suðurlandsvegi í gærkvöldi.

Þær námu þegar staðar og forðuðu sér út, því elddurinn magnaðist. Slökkviliðið í Hveragerði var kallað á vettvang en bíllinn var mikið brunninn og orðinn ónýtur þegar það kom og slökkti eldinn. Ekki er vitað um eldsupptök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×