Lífið

Slökkti á sjónvarpinu þegar hún heyrði brandara um sig

Þó að önnur þáttaröð hinna vinsælu Orange is the New Black hafi þegar verið frumsýnd, er Monica Lewinsky greinilega enn að horfa á þá fyrstu.

Lewinsky er bloggari á Vanity Fair þar sem hún gerir að umfjöllunarefni sínu brandara sem var í ellefta þætti fyrstu seríu þáttaraðarinnar, en brandarinn er á kostnað Lewinsky.

„Ég gerði það sem ég geri venjulega þegar gamla ég er dregin fram í poppkúltúr,“ segir Lewinsky í færslunni.

„Það er mjög niðurlægjandi, ég finn fyrir mikilli skömm og að ég stjórni ekki eigin lífi. Þannig að ég stóð upp og slökkti á sjónvarpinu.“

Brandarinn sem um ræðir var þegar Nicky, sem er leikin af Natösku Lyonne, sagði Dayu, sem leikin er af Döschu Polanca að hún þyrfti að Lewinsky-a fangavörð til þess að upp kæmist ekki um ástarsamband hennar við annan fangavörð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×