Innlent

Sló mann í rot í miðbænum

Bjarki Ármannsson skrifar
Árásarmaðurinn var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag.
Árásarmaðurinn var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag. Vísir/Kolbeinn Tumi
Maður var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í nótt eftir að hafa slegið annan mann í rot. Þolandinn var fluttur á slysadeild til skoðunar en árásarmaðurinn var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag, samkvæmt lögreglu.

Þá var lögregla kölluð á heimili í austurbænum vegna tilkynningar um heimilisofbeldi og líkamsárás. Árásarmaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögregla mætti og þolendur töldu ekki ástæðu til að fara á slysadeild. Málið er til rannsóknar.

Alls stöðvaði lögregla þrjá ökumenn í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og tvo vegna gruns um aksturs undir áhrifum áfengis. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×