Lífið

Slasaðist illa eftir að hafa kastast út úr vatnsrennibraut - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
David Salmon er að jafna sig.
David Salmon er að jafna sig. Mynd/facebook síða David Salmon.
David Salmon endaði á spítala á mánudaginn þegar hann kastaðist út úr vatnsrennibraut á mikilli ferð.

Hann deilir sögunni og myndbandi af atvikinu á Facebook-síðu sinni og hafa gríðarlega margir horft á myndbandið þegar þessi frétt er skrifuð.

Rennibrautin er á einkalóð í Austin Texas í Bandaríkjunum og kastaðist Salmon nokkuð langt í atvikinu.

Hann handleggsbrotnaði og brákaði rifbein, auk þess sem hann slasaðist einnig á öðrum stöðum líkamans.

Hér að neðan má sjá myndbandið sem er nokkuð ógnvekjandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×