Innlent

Skútumönnum bjargað við Gufunes

Bjarki Ármannsson skrifar
Enginn leki kom að skútunni er hún strandaði.
Enginn leki kom að skútunni er hún strandaði. Vísir/GVA
Skúta með fjóra menn um borð strandaði skammt undan Gufunesi við Reykjavík seint á fimmtudagskvöld. Björgunarsveitin Ársæll var kölluð út en bátur frá skemmtibátafélaginu Snarfara varð fyrstur á staðinn.

Að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar, tókst að draga skútuna á flot stuttu eftir miðnætti. Ekki stafaði mikil hætta að skipverjum þar sem enginn leki kom að skútunni og veður var ágætt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×