Heilsa

Skoppaðu þér í form

Rikka skrifar
Mynd/Getty
Trampolín er frábært leiktæki sem er ekki einungis fyrir börn eða fullorðna sem vilja vera börn. Trampólín er líka yfirburðagott æfingatæki fyrir þá sem að nota það rétt.

Það tekur nefnilega meira á vöðva líkamanns en virðist í fyrstu auk þess sem að það byggir upp þol og styrkir grindarbotnsvöðva kvenna.

Krökkunum finnst nú líka skemmtilegt að fá mömmu og pabba út að leika á trampolínið. Trampolínleikfimi gæti því orðið hið fínasta sport fyrir alla fjölskylduna.

Á Youtube síðu Bellicon fyrirtækisins eru fullt af skemmtilegum æfingum sem hægt er að leika eftir og koma sér í form á skemmtilegan máta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×