Lífið

Skömminni skilað til síns heima

Valgerður Þ. Jónsdóttir skrifar
Brynja Bragadóttir stofnaði ráðgjafarstofu ásamt Hildi Jakobínu Gísladóttur um stjórnun og vinnusálfræði. Fréttablaðið/ernir
Brynja Bragadóttir stofnaði ráðgjafarstofu ásamt Hildi Jakobínu Gísladóttur um stjórnun og vinnusálfræði. Fréttablaðið/ernir
Taktu stökkið er yfirskrift tveggja daga vinnustofu fyrir þolendur eineltis á vinnustöðum, sem Brynja Bragadóttir og Hildur Jakobína Gísladóttir hjá fyrirtækinu Officium ráðgjöf bjóða upp á í næsta mánuði.

Markmiðið er að fræða þátttakendur um vinnustaðaeinelti, áhrif þess á líðan þeirra og heilsu og ekki síst að kynna þeim leiðir til að takast á við slíkar aðstæður, „skila skömminni þangað sem hún á heima“, eins og þær segja.

„Þolendur eiga oft erfitt með að tjá sig um líðan sína eða leita sér ráðgjafar. Þeir ímynda sér að enginn annar sé í sömu sporum og eru hræddir við að afhjúpa tilfinningar sínar og vanlíðan fyrir öðrum. Fagleg ráðgjöf getur flýtt batanum í kjölfar eineltis,“ segir Brynja.

Vinnustofan er ekki byggð upp eins og hefðbundið námskeið með einhliða fræðslu heldur er meiningin að þátttakendur, að hámarki fimmtán manns, tali saman og deili reynslu sinni hverjir með öðrum. Brynja og Hildur Jakobína sjá svo vitaskuld um fræðsluþáttinn, stýra og taka þátt í umræðum og eru þátttakendum til leiðsagnar.

Þær leggja ríka áherslu á að fullkomnum trúnaði sé heitið, og sjá fyrir sér að í kjölfar vinnustofunnar haldi þátttakendur áfram að hittast og styðja hver annan. Að sögn Brynju er vinnustaðaeinelti meira vandamál en fólk gerir sér almennt grein fyrir og í rauninni enn þá hálfgert tabú hér á landi. Í Bandaríkjunum sé hins vegar algengt að fólk sem upplifi einelti á vinnustað leiti sér fræðslu og stuðnings hjá sérfræðingum og standi sjálft fyrir stuðningsfundum.

„Við notum þá skilgreiningu í vinnu okkar að einelti sé endurtekin neikvæð háttsemi sem beinist að einum eða fleiri starfsmönnum og ógni heilsu þeirra og öryggi. Það er gríðarlega mikilvægt að uppræta einelti hvar sem það birtist og ekki síst á vinnustöðum, þar sem það er oft dulið og/eða látið afskiptalaust. Einelti er alltaf ofbeldi sem hefur ekki bara áhrif á þolendur heldur líka neikvæð áhrif á aðstandendur og starfsanda á vinnustöðum,“ segir Brynja. „Afköst starfsmanna og ímynd fyrirtækjanna eru líka í húfi,“ bætir hún við.




Tengdar fréttir

Sigurganga Salóme

Heimildarmynd sem Yrsa Roca Fannberg gerði um móður sína, veflistakonuna Salóme E. Fannberg, hefur unnið til verðlauna á þremur kvikmyndahátíðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×