Innlent

Skoðar að aflétta leynd af valdbeitingu lögreglu

Linda Blöndal skrifar
Sérstök umræða um vopnaburð og valdbeitingarheimildis lögreglunnar var á Alþingi í dag. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata sem óskaði eftir umræðunni, tók fyrstur til máls. Hann benti á að verklagsreglur lögreglunnar væru trúnaðarmál og einnig gagnvart Alþingismönnum sem hefðu engar forsendur til að meta hvort lögregla færi út fyrir heimildir sínar í einstökum málum eða ekki.

Vopnaburður og valdheimilirnar „leyndarmál“

Helgi benti á að að vopnalög næði ekki til lögreglunnar samkvæmt reglugerð síðan 1999 sem styðst við 3.grein laga um vopnaburð. Þannig þurfi lögregla ekki að upplýsa neinn um hvernig málum sé háttað í þeim efnum hjá sér.

„Vopnaburður og valdheimildir lögreglunnar eru leyndarmál,“ sagði Helgi Hrafn við upphaf umræðunnar. „Og skiptir niðurstaða hér hjá okkur á Alþingi í sjálfu sér engu máli því við vitum næsta ekkert hvað við erum að tala um og megum ekki segja frá því litla sem við þó þekkjum.“

Helgi vísaði til þess að hann hefði fengið að sjá reglur lögreglunnar en þurft að skrifa undir að láta ekkert uppi um hvað hann fékk að sjá. Hann beindi því til innanríkisráðherra að aflétta þessari leynd og gera reglur um valdheimild lögreglu opinberar.

„Ég legg til að þjóðin hafi rétt til að þekkja valdmörk yfirvalda,“ sagði hann.

Villandi og misvísandi upplýsingar

Helgi nefndi  byssusendinguna í haust frá Norðmönnum sem dæmi um hve misvísandi og villandi upplýsingar þingmenn og almenningur fái um vopnaburð og valdbeitingaheimildir lögreglu.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra sagði að meðfram því að hefja birtingu reglnanna yrði að endurskoða þær og uppfæra. Öryggi borgaranna þurfi þó ætíð að vera í öndvegi og opinberun reglnanna megi ekki skapa  tortryggni gagnvart lögreglunni. Nú þegar hefur ráðherra kannað afstöðu yfirstjórna lögreglunnar.

Yfirstjórn löggæslu jákvæð gagnvart því að aflétta leynd

„Í ljósi þessa kannaði ég, þegar ég kom til starfa í innanríkisráðuneytinu, afstöðu Ríkislögreglustjóra, Landsambands lögreglumanna, lögreglustjóra í landinu og Landhelgisgæslunnar til þess að birta umræddar reglur. Afstöðu þeirra fékk ég rétt fyrir helgi og eftir stendur endanleg ákvörðun mín að ákvarða birtingu þeirra,“ sagði Ólöf á Alþingi í dag.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×