Lífið

Skímó skemmtir í Eldhúspartýi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Frá árinu 1998 hefur útvarpsstöðin FM957 haldið vegleg eldhúspartý á hverju ári. Á fimmtudagskvöldið ætlar FM957 að hverfa aftur til upprunans og fá til sín tónlistarmenn sem komu fram í fyrstu Eldhúspartýum FM957. Þar koma fram Skítamórall, Á móti sól og Hreimur og félagar og verður listinn yfir þau lög sem flutt vera sniðinn að alvöru eldhúspartýi.

Eldhúspartý FM957 verður haldið á skemmtistaðnum Austur og opnar húsið klukkan 21.00. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og standa til klukkan 01.00.

Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á FM957 og á sjónvarpsstöðinni Bravó.

Heppnir hlustendur sem fylgjast með FM957 geta nælt sér í miða á þennan einstaka viðburð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×