Fótbolti

Skilur ekki hvers vegna enska landsliðið er svona slakt

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jérémy Mathieu.
Jérémy Mathieu. vísir/getty
Jérémy Mathieu, nýr miðvörður Barcelona, segist ekki skilja hvers vegna enska landsliðið er í þeim vandræðum sem það er miðað við aðstöðuna sem er í boði á Englandi.

Mathieu er með Barcelona-liðinu við æfingar á St. George's-vellinum í Burton upon Trent þar sem enska landsliðið æfir og hann er heillaður af aðstöðunni sem er í boði.

„Ég skil ekki hvað málið er verandi með þessar frábæru aðstæður. England hefur ekki staðið sig nógu vel, en hvað er að get ég ekki svarað til um,“ sagði Frakkinn við enska blaðamenn.

England komst ekki upp úr riðli á HM í Brasilíu, en það fékk aðeins eitt stig út úr þremur leikjum og skoraði tvö mörk.

„Englendingar verða að svara þessari spurningu sjálfir. Eina sem ég get sagt er, að við höfum notið þess virklega að vera hérna í þessari frábæru aðstöðu og á þessum frábæra velli,“ segir Jérémy Mathieu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×