Lífið

Skilnaður eftir tuttugu ára hjónaband

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sara og Cuba giftu sig árið 1994.
Sara og Cuba giftu sig árið 1994.
Sara Kapfer, eiginkona leikarans Cuba Gooding Jr. til tuttugu ára, er búin að sækja um skilnað. Sara biður um að hún og Cuba deili forræði yfir börnunum þeirra þremur – Spencer, nítján ára, Mason, sautján ára og Piper, átta ára.

Sara og Cuba kynntust sem unglingar og giftu sig árið 1994. Leikarinn hefur ávallt talað vel um konu sína og kemur skilnaðurinn mörgum á óvart.

„Ég á yndislega konu sem veit hvernig á að reka heimili þegar ég er ekki á staðnum. Og við njótum blessunar í þremur yndislegum börnum,“ sagði Cuba í viðtali við sjónvarpsþáttinn The View í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×