Lífið

Skellti sér í baðkar fyllt með chilisósu úr 1250 flöskum

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Það sem menn gera í frístundum sínum getur verið mis gáfulegt. Einn YouTube notandi, sem kallar sig CemreCandar, hefur verið að gera tilraunir með að fylla baðker sitt af alls kyns vökva og skella sér svo ofan í.

Nýjasta uppátæki hans var þó örlítið meira en hann réð við því hann fékk þá flugu í höfuðið að prufa að baða sig í eldheitri chili-sósu. Það tók 1250 flöskur af vökvanum til þess að fylla baðkerið.

Myndbandið má sjá hér að ofna. Ekki prufa þetta heima.

Í myndbandinu má sjá þegar hann fyllir baðkarið og svo þegar hann baðar sig í vökvanum. Áður en hann klárar setningu; „Þetta er ekki svo slæmt,“ fer hann strax að finna áhrifin af gjörð sinni og fyllast eftirsjá.

Í seinni hluta myndbandsins má svo sjá hvernig hann reynir að halda höfði eftir að vökvinn brennir hann að innan sem utan. Síðasta innslag myndbandins er tekið upp nokkrum klukkustundum síðar þar sem hann viðurkennir að vera að fara upp á bráðamóttöku til þess að leita sér læknisaðstoðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×