Skeljungur stefnir á skráningu síðla árs 2016 Sæunn Gísladóttir skrifar 14. október 2015 09:32 Tilkynnt var fyrr á þessu ári að Skeljungur stefndi á markað árið 2016. Vísir/GVA
Skeljungur gæti verið næsta fyrirtæki sem skráð verður á Aðalmarkað Kauphallarinnar. Valgeir Baldursson, forstjóri Skeljungs, segir í samtali við Markaðinn að stefnt sé að skráningu síðla árs 2016. Greint var frá því í apríl að Skeljungur hefði ráðið Íslandsbanka og Arion banka til að vinna að undirbúningi að skráningu félagsins í Kauphöllina. Þá sagði Valgeir að stefnt væri að því að hlutafjárútboð gæti farið fram á fyrstu mánuðum ársins 2016. Svo virðist sem skráningin muni þó tefjast. „Það er áfram sama stefnan að skrá félagið, væntanlega á árinu 2016,“ segir Valgeir. Aðspurður segir hann að skráningin verði ekki í ársbyrjun. „Stefnan er sett á skráningu síðla árs 2016,“ segir hann. Skeljungur er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða og Arion banka. Hluthafar Skeljungs eru SF IV slhf. og SF IV GP hf. SF IV á yfir 99% hlut í Skeljungi. Stærstu hluthafar SF IV eru SÍA II slhf. sem á 24,22% hlut, Arion banki sem á 12,92%, og Gildi lífeyrissjóður sem á 9,3%. Meðal stærstu hluthafa SÍA II eru Gildi lífeyrissjóður, sem á 15,9%, Stapi lífeyrissjóður sem á 10% og Arion banki sem á 7,5%. Tekjur Skeljungs árið 2014 námu 42,8 milljörðum króna og nam hagnaður ársins 570,8 milljónum króna. Eignir samstæðunnar námu 21,4 milljörðum króna, eigið fé rúmum 8 milljörðum og eiginfjárhlutfall var 37,8%.
Mest lesið Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Viðskipti innlent Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Viðskipti innlent Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Sjá meira