Tónlist

Skálmöld spilar á skemmtiferðaskipi í Karíbahafinu

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Björgvin Sigurðsson, aðalsöngvari Skálmaldar og einn af gítarleikurum sveitarinnar, er hér alsæll með plöturnar.
Björgvin Sigurðsson, aðalsöngvari Skálmaldar og einn af gítarleikurum sveitarinnar, er hér alsæll með plöturnar. mynd/Heiðar kristjánsson
Hljómsveitin Skálmöld fékk á dögunum afhenta platínuplötu fyrir plötuna Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands sem kom út árið 2013 en plata kemst í platínu ef hún selst í 7.000 eintökum. Á sama tíma fékk sveitin afhenta gullplötur fyrir plöturnar Baldur sem kom út árið 2010 og plötuna Með vættum sem kom út 2014 en gullplata fæst fyrir að selja 3.500 eintök.

Það þýðir að allar plötur sveitarinnar eru komnar í gull. „Við fórum að grennslast fyrir um þetta fyrir jólin og kíktum á sölutölurnar og komumst að því að plöturnar eru allar komnar í gull og Sinfó í platínu. Við vorum að fá þetta rammað inn fyrir skömmu. Það er ótrúlega gaman að fá svona, þetta er frábær viðurkenning fyrir það sem maður hefur verið að sýsla undanfarin ár. Við eigum núna gull fyrir Sinfó, Börn Loka og Baldur fyrir sölu yfir 5.000, gull fyrir Með vættum fyrir sölu yfir 3.500 og platínu fyrir Sinfó fyrir sölu yfir 7000,“ segir Björgvin Sigurðsson, aðalsöngvari Skálmaldar og einn af gítarleikurum sveitarinnar.

Átti bara að vera saumaklúbbur

Hann segir sveitina þó ekki vera að mala gull þó að hún sé komin með gullplötur fyrir allar plöturnar. „Mann óraði ekki fyrir þessu þegar við byrjuðum í þessu í fyrstu. Við höfum unnið mjög þétt frá því við byrjuðum haustið 2009. Þetta átti eiginlega ekki að vera neitt heldur átti þetta að vera eins konar saumaklúbbur en þegar við gáfum út fyrstu plötuna þá sprakk þetta upp og við höfum ekkert stoppað síðan,“ útskýrir Björgvin. „Við höfum oft talað um að hvíla okkur aðeins en það kemur alltaf eitthvað upp.“

Skálmöld er á leið í sólina í Karíbahafinu en þó ekki til þess að hvíla sig því þar kemur sveitin fram á þungarokkshátíðinni 70.000 Tons of Metal sem fram fer dagana 4. til 8. febrúar en hún fer fram um borð í stærðarinnar skemmtiferðarskipi. „Þetta verður mikið ævintýri, það verður fínt að yfirgefa mistrið í smástund fyrir smá sól. Það verður ekkert að því að hanga á skemmtiferðarskipi í nokkra daga,“ segir Björgvin og hlær. Á hátíðinni koma fram 60 hljómsveitir og tekur skipið yfir þrjú þúsund gesti en á meðal þeirra sveita sem koma fram á hátíðinni eru Cradle of Filth og Paradise Lost. Sveitin fer

Vinna að nýju efni

Hljómsveitin gaf eins og fyrr segir síðast út plötu árið 2014 en er farin að vinna að nýju efni. „Við erum alveg byrjaðir að vinna í nýju efni, vonandi náum við að koma frá okkur plötu seinna á þessu ári, það er stefnan,“ segir Björgvin.

Sveitin hefur farið í fimm stóra tónleikatúra um Evrópu og segist Björgvin finna fyrir því að aðdáendahópurinn sé að stækka erlendis. „Maður fann það eiginlega best þegar við gáfum út Með vættum. Hún kom út þegar við vorum nýfarnir á túrinn, þá fann maður að hópurinn er að stækka úti. Það tekur tíma að byggja upp alvöru nafn, alveg sama hvar maður kemur. Þú kemur í fyrsta sinn í borg og þá koma 50 manns á tónleikana, svo næst þegar þú kemur koma 100, svo 200 svo 400. Þetta er hark en maður finnur að hópurinn stækkar smám saman,“ útskýrir Björgvin.

Fagna gull- og platínuplötunni

Skálmöld ætlar að fagna gullplötunum og platínuplötunni því hún hefur ákveðið að halda tvenna tónleika, í Háskólabíói 26. febrúar og í Hofi 18. mars. „Við höfum spilað á báðum stöðunum áður og það er rosa gaman að spila á báðum stöðum, við hlökkum mikið til.“ Þar ætlar sveitin að fara yfir farinn veg þótt hún viti ekki nákvæmlega hvaða hátt hún ætlar að hafa á því. Meðlimi sveitarinnar langar að bjóða gestum á svið, velja sín uppáhalds Skálmaldar-lög, spila þau og gera grein fyrir hvers vegna þau eru í uppáhaldi. Miðasalan hefst þann 22. janúar á tix.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×