Lífið

Skákmeistarar lofa tilþrifum

Svavar Hávarðsson skrifar
Þeir Nigel Short og Hjörvar Steinn takast á í sex skáka einvígi um helgina.
Þeir Nigel Short og Hjörvar Steinn takast á í sex skáka einvígi um helgina. Vísir/Anton Brink
Goðsögnin Nigel Short og Hjörvar Steinn Grétarsson, yngsti stórmeistari Íslands, mætast í MótX-einvíginu í Salnum í Kópavogi nú um helgina. Skákfélagið Hrókurinn skipuleggur þennan stórviðburð í íslensku skáklífi, og má búast við stórskemmtilegu einvígi, en báðir meistararnir eru þekktir fyrir snilldartilþrif á skákborðinu.

Short og Hjörvar tefla sex atskákir, með 25 mínútna umhugsunartíma, og verður frábær aðstaða í Salnum til að fylgjast með spennandi einvígi. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.

Nigel Short var undrabarn í skák. Stórmeistari varð hann 19 ára og var þá yngstur allra í heiminum sem báru þann eftirsótta titil. Short hefur unnið tugi alþjóðlegra skákmóta og verið í fremstu röð í áratugi. Á hátindi ferils síns vann Short sér rétt til að tefla um heimsmeistaratitilinn við sjálfan Garry Kasparov árið 1993, en beið lægri hlut.

Árið sem Short glímdi við hinn göldrótta ofurmeistara Kasparov um heimsmeistaratitilinn fæddist Hjörvar Steinn Grétarsson, sem nú er yngstur þeirra Íslendinga sem skarta stórmeistaratign. Hann er nú næststigahæsti skákmaður Íslands með 2580 stig, og er til alls líklegur gegn Short, þótt enski meistarinn skarti nú 2671 skákstigi.

Short og Hjörvar Steinn munu tefla sex atskákir í Salnum. Umhugsunartími er 25 mínútur fyrir hvorn keppanda. Það er mun styttri tími en í hefðbundnum kappskákum, og má búast við tímahraki með tilheyrandi fjöri.

En hér er ekki allt talið. Nigel Short er maður mikilla hæfileika treður upp sem söngvari í skák-rokkbandinu The Knight b4 á Húrra í Tryggvagötu og setur punkt við skákhátíðina. Aðrir í hljómsveitinni eru Arnljótur Sigurðsson, Hjörtur Ingvi Jóhannsson, Viggó E. Hilmarsson og Þorvaldur Ingveldarson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×