Innlent

Sjúkratryggingar fara milljarða fram úr áætlun

Sveinn Arnarsson skrifar
Gert er ráð fyrir að útgjaldaaukning sjúkratrygginga sé mest vegna lækniskostnaðar og vegna leyfisskyldra lyfja, eða S-merktra lyfja.
Gert er ráð fyrir að útgjaldaaukning sjúkratrygginga sé mest vegna lækniskostnaðar og vegna leyfisskyldra lyfja, eða S-merktra lyfja.
Líklegt þykir að Sjúkratryggingar ríkisins fari allt að þremur milljörðum fram úr þeim fjárheimildum á árinu sem stofnuninni eru settar með fjárlögum. Á fyrstu fimm mánuðum ársins voru Sjúkratryggingar komnar um 870 milljónum króna fram úr áætlun.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um ársáætlanir ríkisstofnana fyrir árið 2014 kemur fram að gert er ráð fyrir að útgjaldaaukning sjúkratrygginga sé mest vegna lækniskostnaðar og vegna leyfisskyldra lyfja (svokallaðra S-merktra lyfja). Þau lyf eru notuð á sjúkrahúsum landsins en greidd af Sjúkratryggingum Íslands.

„Það er vissulega rétt að það stefnir ekki í góða afkomu Sjúkratrygginga í ár og þetta er alls ekki auðvelt að ná utan um,“ segir Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. „Það þarf hins vegar að gera skýran mun á rekstri sjúkratrygginga og þeirra réttindaflokka sem við sinnum og heyra undir okkur. Rekstur Sjúkratrygginga sem slíkur er í afar góðum farvegi en það stefnir í að réttindaflokkarnir fari umtalsvert fram úr forsendum fjárlaga,“ segir Steingrímur Ari. „Stærsti liðurinn sem skýrir þennan umframkostnað er lækniskostnaður sem er um milljarður. Sá samningur var gerður við sérgreinalækna í lok síðasta árs.“

Að mati Ríkisendurskoðunar hefur ekki verið gripið til nægilega markvissra aðgerða til að stemma stigu við kostnaði Sjúkratrygginga þannig að tryggt sé að hann verið í samræmi við heimildir fjárlaga í lok árs. Samt sem áður hefur verið kynnt nýtt greiðsluþátttökukerfi sem minnkar þátttöku ríkisins umtalsvert í lyfjakaupum landsmanna.

Fjárlaganefnd mun fara yfir málið
Vigdís Hauksdóttir
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, segist ekki hvika frá því markmiði að skila hallalausum fjárlögum og að stofnun eins og sjúkratryggingar verði að koma á fund fjárlaganefndar og útskýra stöðu mála.

„Við sjáum á nokkrum stöðum rauð blikkandi ljós í nokkrum málaflokkum. Eftir verslunarmannahelgi fer nefndin að funda um þær stofnanir sem hafa farið fram úr í sex mánaða uppgjöri sínu. Þá munum við taka til óspilltra málanna,“ segir Vigdís. „Í þessu tilfelli sjúkratrygginga hefur einhver vanáætlun átt sér stað og áður en ég fer að tjá mig um málið þá vil ég að stofnunin fái að koma á fund nefndarinnar og fái tækifæri til að útskýra þessa vanáætlun sína."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×