Innlent

Sjúkraliðar bíða fram yfir páska

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Hefð er fyrir því að slá upp vöfflukaffi þegar skrifað er undir kjarasamninga í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Tilefni gafst til slíkra veitinga á aðfararnótt mánudags þegar félög BHM sömdu við sveitarfélög landsins.
Hefð er fyrir því að slá upp vöfflukaffi þegar skrifað er undir kjarasamninga í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Tilefni gafst til slíkra veitinga á aðfararnótt mánudags þegar félög BHM sömdu við sveitarfélög landsins. vísir/Anton
„Það hefur enginn fundur verið haldinn síðan við tilkynntum um verkfall,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ), um stöðuna í kjaraviðræðum félagsins við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Sjúkraliðar samþykktu boðun verkfalls um miðjan mánuðinn.

„Ríkissáttasemjari ákvað að ekki væri ástæða til að vera með fund fyrr en hálfum mánuði síðar, sem er 30. mars, rétt eftir páskana,“ segir Kristín. Nýundirritaður samningur sveitarfélaganna við BHM hafi engu breytt um það. „Það hefur ekkert heyrst í þeim.“

Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir stöðuna óbreytta í viðræðum félagsins við sveitarfélögin, viðræður standi yfir. Þá séu hjúkrunarfræðingar að svo stöddu ekkert farnir að velta fyrir sér hugsanlegum aðgerðum til að þrýsta á um samning.

Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands
„Ætli það fari ekki að ganga hraðar núna en verið hefur hingað til,“ segir Ólafur, línur séu að skýrast í viðræðunum. „Hægt og rólega er þetta að koma.“

Samningar sem náðust á milli samninganefnda sveitarfélaganna og níu félaga Bandalags háskólamanna (BHM)og skrifað var undir á mánudagsmorgun sýna þó að skjótt getur skipast veður í lofti í viðræðunum.

Fram undir síðustu viku var fremur þungt hljóð í  fólki hjá BHM og rætt um að skoða aðgerðir vegna þess að kjaraviðræðurnar hefðu dregist úr hömlu. Þá sagðist Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, „hæfilega bjartsýn“ á framhaldið um miðja síðustu viku, en sagði viðræður þó þokast áfram.

Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Páll Halldórsson, formaður samninganefndar BHM, segir hlutina svo hafa smollið aðfaranótt mánudags.

Félög BHM sem semja við sveitarfélögin eru Dýralæknafélag Íslands, Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands, Fræðagarður, Iðjuþjálfafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga og Þroskaþjálfafélag Íslands.

Nýr samningur verður nú kynntur félagsmönnum og kosið um hann, en fram kemur á vef BHM að tilkynna þurfi niðurstöðu kosninga um samninginn ekki síðar en fimmta apríl næstkomandi. 



Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. mars.


Tengdar fréttir

Sjúkraliðar boða allsherjarverkfall

Öldrunar- og hjúkrunarþjónusta á vegum sveitarfélaga landsins raskast í byrjun apríl komi til verkfalls sjúkraliða. Verkfall samþykkt með 97 prósentum atkvæða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×