Innlent

Sjúkrabíll með veikan ungling fauk út af á Bjáfjallavegi

Bláfjöll.
Bláfjöll. vísir/vilhelm
Sjúkrabíll með bráðveikan ungling um borð fauk út af Bláfjallaveginum í ofsaveðri um klukkan ellefu í gærkvöldi. Tveir sjúkrabílar, fjallabjörgunarbíll og lögreglujeppi höfðu verið sendir á vettvang, og munaði minnstu að lögreglujeppinn fyki líka út af, eftir að hafa snarsnúist á veginum.

Nokkurn tíma tók að koma sjúkrabílnum aftur upp á veginn, enda var varla stætt á vettvangi auk þess sem þar var flughált og slæmt skyggni. Það tókst að lokum og gekk ferðin klakklaust úr því.

Unglingurinn, sem var í hópi skólafélaga í Bláafjöllum, var lagður inn á bráaðmóttöku Landsspítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×