Innlent

Sjálfstæðiskonur sjá eftir Ragnheiði Elínu

Eftir breytinguna sitja aðeins karlmenn í stjórn þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Þingkonur skoða rannsóknarskýrsluna árið 2009.fréttablaðið/pjetur
Eftir breytinguna sitja aðeins karlmenn í stjórn þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Þingkonur skoða rannsóknarskýrsluna árið 2009.fréttablaðið/pjetur
„Já auðvitað kom þetta mér í opna skjöldu þegar formaðurinn orðaði þetta við mig í síðustu viku,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til á þingflokksfundi í gær að Illugi Gunnarsson tæki við af Ragnheiði sem formaður þingflokksins.

Ragnheiður segir að hún hafi óskað eftir að ekki yrði kosið á milli þeirra Illuga. „Þetta var ákvörðun formanns og ég taldi enga ástæðu til þess að stilla þingmönnum upp við vegg með því að kjósa á milli okkar. Ég held að það sé ekki gott fyrir þingflokkinn og ekki gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ég legg meiri áherslu á samstöðu innan þingflokksins heldur en að fara út í slíkar kosningar.“

Ragnheiður Elín sóttist eftir því að gegna embættinu áfram og segist hafa lagt mikið upp úr því, sem formaður þingflokks í tvö ár, að halda utan um hópinn. „Ég hef reynt að tryggja það að við vinnum vel saman og held að það hafi tekist mjög vel.“

Hún segir þetta þó engan endapunkt, vegtyllur komi og fari í stjórnmálum. Hún muni einbeita sér að vinnunni fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi og sækist eftir því að leiða listann á ný í næstu kosningum.

Jarþrúður Ásmundsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna, segir breytinguna ekki slá sig vel. Hún komi á óvart og án þess að nokkuð sé hallað á Illuga hafi Ragnheiður Elín staðið sig mjög vel í embættinu. Hún hefði viljað sjá hana áfram í því á kosningavetri.

„Það verður að segjast eins og er að áhrifastöðum innan flokksins er ekkert sérstaklega jafnt skipt á milli kynjanna. Við sjáum því að sjálfsögðu mikið á eftir konu úr þessari áhrifastöðu.“

Ragnheiður Elín segist ekki vilja horfa á breytinguna út frá kynjapólitík. „Mér finnst þó að vera mín þarna hafi vissulega breikkað forystuna, bæði það að ég er kona og að ég er oddviti flokksins í stóru landsbyggðarkjördæmi. Ég tel að það hafi styrkt forystu flokksins.“

Eftir breytinguna sitja aðeins karlar í stjórn þingflokksins. Illugi,  varaformaðurinn Einar K. Guðfinnsson og ritarinn Birgir Ármannsson.kolbeinn@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×